Þá er það staðfest. Æfingar hefjast næsta Sunnudag í Sporthúsinu, Kópavogi.
Þeir sem voru staddir á fundinum í kvöld þann 2/6 vita hvernig þetta verður. Hér mun ég setja inn upplýsingar fyrir þá sem voru ekki á fundinum.

Ákveðið var á leigja sal Sporthúsins og verður það þannig að teknir verða 4 tímar í senn í 2 mánuði.
En kostnaðurinn við það verður 8500 kr. á mann og verður það lagt inná reikning félagsins fyrir helgina. Svo það verði hægt að borga tímana. Framlengin tíma verður hugsanleg og ef fólk vill verður það rætt með tímanum. Æfingarnar verða örugglega ekki allar spil og vonast ég til að geta haft það sem oftas samt sem áður. Vona að sem flestir verðir ánægðir með þetta og sem flestir sjái sér fært um að koma. En æfingin skapar meistarann eins og máltakið segir.

En hérna koma upplýsingar fyrir innleg á reikning félagsins.

Reiknings númer : 0303-26-9910
Kennitala félagsins er : 540200-2540

En fyrir þá sem voru að fundinum verður þeim einnig send sms á næstkomandi dögum.

Hlakka til að sjá sem flesta af ykkur á æfingunum.
G.B.B