Sælt veri fólkið,

Ég er formaður og stofnandi Litboltafélag Akueyrar og ég ætla mér, ásamt fleirum, að koma upp velli til litboltaiðkunar á Akueyri.

Ég ætla að girða völlinn af með Öryggisneti svo aðstandendur geti horft á æfingar eða mót án þess að þurfa nota grímur.
Ég var að horfa á myndband um daginn af litlum speedball velli fyrir sunnan og ég tók eftir því að þeir voru með svipað, ef ekki allveg eins öryggisnet og þeir sem sjá um speedball vellina úti.
Ég var að spá hvort einhver gæti sagt mér eitthvað nánar til um þessi net. Hvernig þau eru fest niður, hvernig þau reynast hér á Íslandi o.s.f.v.

Aron