Var í litbolta í fyrsta sinn um daginn með skólanum í forkeppni fyrir menntaskólakeppnina og fékk bara þennan rosalega áhuga á litbolta.

Ég var bara að spá í hvernig maður fer að því að fá svona byssu heim til sín ef það er hægt, er eina aðferðin að skrá sig í félag til að geta fengið merkjarann ?
Einnig hvaða merkjara ég ætti að fá mér fyrir semsagt algeran byrjanda í sportinu.

Ég stefni á að fara aftur í paintball á næstunni en ég væri til í að hafa aðeins nákvæmari byssu og betri grímu en ég var með, gríman fékk strax móðu og síðan var hún að meiða mig allan tímann og byssan hitti ekkert rosalega nákvæmt.