Sælir felagar
Ég er einn af þeim sem er alveg grænn í þessu litbolta máli en er samt sanfærður um að kaupa minn eiginn pakka, en skil samt ekki alveg hvað sumir af þessum hlutum gera enda vantar smá leiðbeiningar, myndir eða vísun í erlenda heimasíðu um þessa hluti sem eru í verðlistanum hér á þessari heimasíðu, en sýnist samt að það sem er sett upp sem grunnpakki af DaXes ætti að duga.

En hvað með auka vörur eins og:
1. Auka kúluhylki ?
2. Vesti fyrir hylkin (kúlugeymsla)?
3. Auka gler í grímuna ?
4. Auka kolsýruhylki ?
5. Auka O-hringi f. kolsýruhlkið ?

Þarf þessa auka hluti og hvað mæla þá hinir reyndu með ?

Með kveðju
Duke