Sælt veri fólkið..

Ég varð fyrir því óláni að brjóta lokið af viewloader hoppernum mínum um daginn. Lokleysið hefur skilið mig eftir sem hálfan mann og því hef ég ráðist í það verk að panta varahlutinn af vefsíðu vestanhafs. En áður en ég ræðst í að panta þá vildi ég gjarnan fá að vita hvort einhverjum öðrum vantar varahluti í viewloader hopperinn sinn, hvort sem það er evolution, revolution eða önnur gerð, eins lengi og það er viewloader hoppari..

Verðin á varahlutunum eru æði mismunandi, og fara þau að virðist öll eftir stærð hlutarins, en verðin eru frá $0.01 upp í +$10(rafmagnsvarahlutir eru þó heldur dýrari, en þeir fara á $20). Póstsendingin leggst svo auðvitað ofan á verðin, en ef einhver sýnir áhuga, þá getum við niðurgreitt póstsendingakostnaðinn saman ;)

kv,
Pétu