Ég hef verið að hugsa mér að kaupa mér merkjara. Og ég hef verið að fletta í gegnum korkana. Ég er að fíla Vyper m1 og lýst vel á hann en afhverju í fjandanum eru svo margir Vyperar m1 til sölu. Ég hef verið að fletta í gegnum korkana og ég hef séð eithvað um 6 mismunandi gaura vera að selja Vyper m1 byssu. Ef þessi byssa er svona góð afhverju eru svo margir að reyna að losna við hana?

Ef þið eruð að selja Vyper m1 byssu samfærið mig þá að þetta sé góð byssa og ég gæti verið mjög líklegur til að kaupa hana.

Ath. Byssan VERÐUR að vera í góðu lagi og virka vel! Ekki skaðar að fyrrverandi eigandi hafi hugsað vel um hana.<br><br>“The stars themselves once lived and died at our command, and yet you still dare to oppose our will” - Farseer Mirehn Bielann