Það gerist ekki á hverjum degi að lið frá Íslandi keppi erlendis í nýrri keppnisíþrótt en á morgun mun hópur litboltaspilara halda til Englands og etja kappi við aðra litboltaáhugamenn á móti sem haldið verður á svæði enska 1. deildarliðsins Crystal Palace í Lundúnum. Liðið, sem skipað er átta manns, sjö körlum og einni konu, hefur æft saman í marga mánuði en hópurinn er úrval úr nokkrum liðum á landinu sem stunda þessa jaðaríþrótt.
Í litbolta klæðast menn skrautlegum búningum, vopnaðir loftknúnum litmerkjurum sem hlaðnir eru kúlum úr matarlímsskel. Kúlurnar innihalda litarefni og springa þegar þær lenda á skotmarkinu. Yfirleitt er skipt í lið og keppt á sérstökum afmörkuðum svæðum.

Að sögn Guðmanns Braga Birgissonar, formanns Litboltafélags Reykjavíkur, eru um eitt hundrað manns á öllum aldri í félaginu. Hann segir að 200 lið víðs vegar úr Evrópu muni keppa um næstu helgi í Lundúnum á átta völlum í þrjá daga. Úrslit munu ráðast á sunnudag. Áhugasamir munu geta fylgst með keppninni á Netinu með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.+

heimildir: www.mbl.is
I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch