Sko málin eru þannig að ég á heima á Kjalarnesi og það er ekkert mjög auðvelt að koma sér frá kjalarnesi og að grindavík í Húsið.

Þannig að ég var að pæla hvort fólk væri til í að koma i Saltvík og spila kanski helgina 20-22 ? Ég þarf bara að fá leyfi hjá honum Gunna gamla (sá sem á staðinn) sem ætti ekki að vera erfitt. Þetta er kanski svona 30 min ferð frá bænum.

Þetta er sko alveg geðveikur staður til þess að spila, það var þarna paintball völlur áður eins og margir vita og þarna eru fullt af húsum og hólum og allskonar apaleiktækjum sem fólk getur leikið sér í.

Mér langar bara að vita hvað fólki finnst um þetta, hvort að einhver væri til í að koma.