Jæja Litboltarar

Fyrir nokkru athugaði ég um áhuga á að sameinast um pöntun á Marballizers kúlum. Þá náðist ekki í nógu marga kassa til að hægt væri að fara af stað í þetta.

Hvað segja menn nú ?

Veðrið batnar, það er búið að spila í Húsinu, allt er að fara í gang.

Gera má ráð fyrir að spilað verði flestar helgar hér eftir og fram á vetur.

Þeir sem hafa áhuga á þessum kúlum, endilega hafi samband við mig hið fyrsta, netfangið er gudmann(at)simnet.is.