Eftirfarandi er tekið úr dagbók lögreglu í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ: “Þá bárust lögreglu allmargar kvartanir yfir ungmennum sem fóru um í Garðabæ með ”paintball“- byssu og skutu málningarkúlum að húsum og bílum. Málið er í rannsókn. Lögreglan væri þakklát ef henni bærust frekari upplýsingar varðandi þetta mál.”

Þetta er hið versta mál og skorum við á alla sem hafa einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu eða Xavier með því að senda mér skilaboð hérna á huga.

Þetta er sérstaklega slæmt í ljósi þess að reglugerðin um litbolta stendur á brauðfótum og þetta atvik getur haft verulegar afleiðingar fyrir litboltasamfélagið í heild sinni ef að þetta upplýsist ekki.

Kveðja,

Xavie