Hey hó

Á sunnudaginn 23. júní verður haldið paintballmót á Sup'Air'Ball vellinum (loftbelgjavellinum) sem settur verður upp í Lundi, Kópavogi.

Keppt verður í 5 manna liðum og er skráningarfrestur er til kl 16:00 á laugardaginn 22. júní.

Mótsgjald er 1500 krónur á mann. Merkjarar og allur búnaður til leigu á 1000 krónur fyrir þá sem ekki eiga eigin útbúnað.

Völlurinn verður kominn upp milli kl 16 og 17 á laugardeginum og verður strax þá opinn til skoðunar fyrir þá sem vilja ganga völlinn, átta sig á skotlínum, hlaupaleiðum og fara yfir “strategíur” og þess háttar.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Vilhelm í síma 893 9000.

bestu kveðjur
Guðmann Bragi