Vonir standa nú til þess að húsnæðismál séu að leysast. Við erum komin með leyfi húsráðanda í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ og fáum gjaldfrjálst að nota geymslu á annarri hæð hússins. Við sjáum ekkert því til fyrirstöðu að leyfi fyrir húsnæðinu fáist, nema það vantar þjófavarnarkerfi.

Eftir óformlegt samtal við viðeigandi lögregluyfirvöld er líklega ekki þörf á kerfi með viðvörun til stjórnstöðvar öryggisfyrirtækis, þannig að kerfi með hreyfiskynjara, sírenu og einföldu stjórnboxi ætti að duga. Þó félagið eigi smávegis í sjóði dugar það ekki til kaupa á þeim búnaði.

Því er nú þörf á því að allir þeir sem mögulega geta greiði árgjald félagsins á morgun fimmtudag 11.apríl, eða snemma dags föstudag 12. apríl.

Árgjald er 1500 krónur.
Til að greiða árgjaldið er best millifært í Netbanka eða lagt inn á reikning númer : 0303-26-9910
Kennitala félagsins er : 540200-2540
Nafn reikningseiganda : Litboltafélag Reykjavíkur.