Nú er Litboltafélag Suðurnesja (LiBS) orðið löglegt og getur farið að panta inn byssur fyrir félagsmenn. Verið er að hanna meðlimakort fyrir alla virka meðlimi og fylgja því ýmis fríðindi s.s. afsláttur af litboltavörum frá SS-Stál, afsláttur á áfyllingu á kúta hjá Eldvörnum ehf. Slökkvitækjaþjónustu Suðurnesja 300 kr. hver kútur, einnig hafa allir félagsmenn aðgang að búningum sem félagið á og Cronograph mæli til að hraðamæla byssur áður en byrjað er að spila.
Nú er rétti tíminn til að eignast litbolta byssu eina sem þú þarft að gera er að skrá þig í félagið, borga félagsgjaldið (1500 kr.) og láta okkur vita hvaða byssu þú hefur áhuga á og við reddum henni. (stjorn@paintball.is)