Aðalfundur LBFR verður haldinn laugardaginn 24. nóvember í Háskólanum í Reykjavík.

Efni fundarins er að kjósa um tillögu þess efnis að LBFR og LiBS sameinist.

Tillagan hljóðar svo :
Aðalfundur LBFR felur stjórn félagsins að hefja viðræður við stjórn LiBS um sameiningu félaganna.

Rökstuðningur :
Félögin tvö starfa bæði á sama svæði, höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögunum og út á Reykjanes. Félagsmenn félaganna beggja spila saman og hver við aðra. Öll hagsmunamál félaganna um leiksvæði og geymsluaðstöðu eru hin sömu, sem og samstarf við yfirvöld eru hin sömu. Því er réttast að sameina kraftana í eitt stórt félag.