Þessa helgi verðum við á Skaganum með Sup'AirBall völlinn okkar. Völlurin verður á Skagaverstúninu fyrir þá sem til þekkja og er óhætt að segja að mikill áhugi sé á Akranesi fyrir því að fá að spila.
Mótið verður að öllum líkindum haldið á Sunnudeginum og munu LiBS og LBFR sjá um alla skipulagningu á mótinu að þessu sinni. Fleirri dómarar verða en á seinasta móti og eiga hlutirnir að geta gengið mun hraðar fyrir sig nú en seinast.
Margir ætla að gista á skaganum og skemmta sér þar. Það er um að gera að skella sér með og fylgjast með mótinu á sunnudag.

Það er síðan fyrir þá sem að vilja bara spila til að skemmta sér þá er hægt að panta tíma í síma 893-9000 fyrir laugardaginn.

Sjáumst hress.

Xavie