Mót í litbolta - 3 manna liðum verður haldið sunnudaginn 26. júní á Víðistaðatúninu í Hafnarfirði.

Formatið verður 3 manna lið, einn fáni á miðjum vellinum og takmarkið verður að ná fánanum og koma honum yfir völlinn í heimahöfn andstæðinganna.

1 stig verður gefið fyrir jafntefli, þ.e. ef hvorugt lið hefur náð að koma fána í höfn.

1 stig verður gefið fyrir að ná fána og 1 fyrir að koma honum í höfn.

Leikir geta því farið 1 - 1, 2 - 1 eða 3 - 0.

Tími hvers leiks verður 3 mínútur, þannig að sækja verður stíft til að ná 3 - 0 sigri innan leiktímans.

Keppt verður í tveimur deildum.

Í annarri deildinni verða lið sem fá allan útbúnað að láni, í hinni deildinni verða lið þar sem fólk kemur með eigin útbúnað. Lið munu fyrst og fremst keppa við önnur lið í sömu deild, en þó má búast við einhverjum leikjum milli deilda.

Það lið vinnur sína deild sem verður með flest stig í lok móts.

Mótsgjaldi verður stillt í hóf og verður 15 þúsund á lið, innifalið í því eru 3000 kúlur eða um 12 þúsund að verðmæti. Þetta magn af kúlum ætti að duga fyrir mótið.

Lið geta verið skipuð allt að fimm manns sem skiptast á að spila.

Fólk sem ekki á eigin búnað fær búnað að láni án sérstaks endurgjalds.

Ef einhver í liði er með eigin búnað spilar liðið í efri deild, þó aðrir í liðinu séu með búnað að láni.


Skráning er gerð með tölvupósti á netfangið : sveinbjorn_e@hotmail.com.

Sendið skráningu sem fyrst, því fjöldi liða verður takmarkaður og tímasetning skráninga mun gilda.