SkjárEinn fór í Litbolta í Kópavoginn um daginn og voru að keppa við ÍÚ. Skjárinn tók auðvitað myndatökumann með sér og voru herlaegheitinn sýnd í Adrenalín á fimmtudaginn að ég held.
Þetta var algjör snilld á að horfa og “glæsileg” myndataka í gangi. Ég hló mikið af þessu og mæli með því að þið látið Adrenalín ekki framhjá ykkur fara þegar þessi þáttur verður endursýndur.

Það var algjórlega brilliant að heyra í myndatökumanninum kvarta þegar fólk var að skjóta hann. LOL…

Það var mjög gaman að fylgjast með þessu öllu en þessi hluti þáttarins hefði mátt vera lengri fyrir mitt leiti.

Þannig að, allir stilla á SkjáEinn þegar Adrenalín verður endursýnt.

Nóg í bili… Xavier@hugi.is