Jæja jæja… nú er það að gerast ….
Jeeeeeeeehúúúúúúúú

Komið er að því að stærsta samspil ársins í paintball verður núna um helgina. Það á að setja upp uppblásna völlinn í Lunda núna um helgina og þar verður sko ROKKAÐ !!!!

Liðið sem er að fara til London að keppa ætlar að mæta og vera með æfingu og spila við aðra paintball spilara, svo að endilega mætið þeir sem langar að mæta og spila paintball.
Reynt verður að hafa þetta allt sem skemmtilegast og fjörið haft í fyrirrúmi !!!!!!!!
Enda Paintball skemmtileg íþrótt……
Byrjað verður aðsetja upp völlinn á laugardagsmorgninum og reynt að byrja spila um hádegisbilið.

Áætlað er að hafa völlinn upp bæði á Laugardaginn og Sunnudaginn svo að fólk ætti að geta fengið sem mest út úr helginni. Ég vil einnig benda á að þið þurfið ekki að örvænta ef þið eigið ekki kúlur því hægt er að fá kúlur hjá Villa (Sjá Forsíðu) svo að hægt sé að gera helgina skemmtilega

Svo er bara að mæta og hafa fjör….. Látið bara orðið berast ( Word to the people … hehehehehe ) svo að sem flestir geti séð sér fært um að mæta


Fjör Fjör Fjör Stuð Stuð og skemmtilegheit

P.S. fyrir þá sem ekki vita þá er "Lundi” paintball svæðið í Kópavogi