Paintball - Myndbrot vikunnar Nú höfum við heldur betur dottið í lukkupottinn. Shaggdaddies hópurinn hefur heimilað okkur að birta þær paintball video myndir sem þeir hafa tekið í gegnum tíðina.
Um er að ræða keppnir á milli top liða í litbolta á mismunandi völlum. Videoin eru mjög stór eða um 25 mb hvert og munum við reyna að birta eitt í hverri viku. Þetta eru mjög skemmtilegar keppnir sem allir litboltaunnendur ættu ekki að láta framhjá sér fara. Fyrsta myndin sem að við birtum hérna er frá því 1999 og sýnir Avalance á móti Lockout en þessi lið eru með þeim fremstu í heiminum í NPPL deildinni.

Njótið vel.

Daxes & Xavie