Jæja jæja… loksins er stundin að renna upp. Eftir miklar æfingar og mikil plön um hitt og þetta, töflufundi og vídeo gláp af fyrri keppnum þá er tími kominn til að fara að pakka niður því við förum í fyrramálið.

mikið hefur verið lagt í undirbúning fyrir þetta mót og vonumst við til að komast sem lengst og sanna að við íslendingar erum enn víkingar í okkur.

við ætlum okkur að senda inn stuttar greinar eins oft og við getum hingað á huga svo að fólk hérna heima geti fylgst með okkur og kannski upplifað aðeins fýlinginn…..

einnig er hægt að svara okkur með frekari spurningum sem við reynum að svara með bestu getu……

Frábært væri ef fólki gæti líka skrifað okkur kveðjur og annað þess háttar til að auka enn meira á stemmninguna fyrir okkur úti

með kveðju

ICELANDERS