Mér hefur tekist að ná hagstæðum samningum á þrýstiloftskútum (HPA, High Pressure Air) frá PMI Pure Energy.

Um er að ræða kúta með 48 ci (kúbitommur) rúmmáli og fyrir 3000 punda þrýsting, sem skila út 850 punda þrýstingi, sem er sami þrýstingur og kolsýrukútar gefa. Þetta eru einnig “screw-in” kútar, þ.e. þeir skrúfast inn í merkjarann á nákvæmlega sams konar hátt og kolsýrukútar, og geta því komið í stað kolsýrukúts án nokkurra annarra viðbóta.

Pure Energy kútarnir frá PMI þykja með betri “screw-in” kútum á markaðnum. Þeir halda útþrýstingum mjög stöðugum og þar með skotkraftinum. Jafn útþrýstingur er með því mikilvægasta í nákvæmum skotum, þar sem þá fer kúlan af sama hraða út úr hlaupinu og drífur þar með alltaf jafn langt. Sveiflukenndur útþrýstingur er einmitt aðalvandamálið við kolsýru því þrýstingurinn sveiflast þegar skotið er mörgum sinnum í röð og þar með drífur kúlan styttra eða lengra til skiptis og erfitt er að miða rétt. Loftflæðið í gegnum stútinn er einnig mjög gott, þannig að það er sama hver ört er skotið, merkjarann vantar aldrei loft.

48 ci HPA kútur sem þessi er um það bil jafn stór og 20oz CO2 kútur, nema hann er svolítið styttri en um leið eitthvað þykkari.

Úr svona 48 ci PMI kút hef ég verið að ná um 500-600 skotum á Inferno T3 og hefur það vel dugað mér fyrir daginn af spilamennsku.

Áfyllingar má fá í Lundi og hjá nokkrum aðilum, til dæmis Kolsýruhleðslunni/Prófun á Kársnesinu í Kópavogi. Kostar 500 krónur hjá báðum sem er um það bil það sama og kolsýruhleðsla kostar.

Verðið á kútnum er 9.500 krónur, sem er lækkun úr 12 - 13 þúsundum. Lækkunin kemur til vegna bæði lægra verðs á kútunum og mjög góðs tilboðs í sendingarkostnað.

Uppfærsla úr kolsýru yfir í þrýstiloft er eitt það einfaldasta sem hægt er að gera og um leið með árangursríkari leiðum til að gera merkjarann nákvæmari og alla spilamennsku þar með mun skemmtilegri.

Áhugasamir hafi samband við mig fyrir vikulokin, eða 28. apríl.

Meira um kosti þrýstilofts :
http://www.actionvillage.com/actionvillage/whynitrog en.html

Mynd af 48ci PMI Pure Energy kút :
http://store6.yimg.com/I/actionvillage_1732_14071667 4

kv,
Guðmann Bragi Birgisson
LBFR