E-Blade Planet Eclipse (www.planeteclipse.com) voru að senda frá sér nýtt grip fyrir Autococker. Þetta er svokallað E-Blade. Það sem er sérstakt við þetta grip er að það hefur verið að koma Autocokcernum uppí 19,2 kúlur á sek. Það sem meira er að það fyrlgir með gripinu auga sem skynjar kúlur í breechinu þannig að sprungnar kúlur í hlaupi eiga að heyra sögunni til.

E-Blade ramminn passar á allar gerðir autocokera fyrir og eftir 2000 uppfærsluna á merkjaranum. Skipt er út gripinu og solinaoid rofanum sem stjórnar trekingunum. Allar tímaaðgerðir eru stillanlegar í byssunni sjálfri.
Augað fylgir með en er ekki nauðsynlegur hlutur (þarf ekki að hafa það uppsett til að ramminn virki) en fyrlgir samt með frítt.

Ramminn tekur 1 9volta batterý. Það sem mestu máli skiptir þó er að núna er hægt að fá hraða Angel með nákvæmni Autocoker. Það eru þó nokkur PRO lið að skipta yfir í Autocokerinn aftur núna þegar E-Blade er komið.

Hlakkar til að fá svona grip til landsins. Fyrst þarf þó sá sem stal merkjaranum mínum að skila honum (eða tryggingarnar að borga)

Bestu kveðjur,

Xavie