Hægt er að versla allar paintball græjurnar fyrir jólapakkann hjá SS-Stál í Hafnarfirði. Nú er bara að segja öllum sem gefa manni hvernig grímu og þess háttar mann langar í.
Þeir í SS-Stál geta örrugglega reddað þér með allskyns séróskir, þó að það bjargist ekki fyrir jól er flott að fá Gjafabréf uppá byssuna sína.

Það er um að gera að sem flestir fari að versla sér byssur þannig að gera spilunina á klakanum sem fjölbreyttasta.

Annað atriði! Ég rakst á Eyþór um helgina og hann sagði mér að það væri allt ennþá opið hjá honum og stefndi hann á að hafa opið áfram. Ef að einhverjir hafa farið að spila hjá honum síðustu vikurnar þá væri gott að fá smá innskot um hvernig var og hvernig aðstæður eru þessa daganna til að spila utandyra hjá honum.

Sjáumst í stríðinu!!!

Gleðileg jól öll saman…

Xavier [LBFR]

P.S. Takið skal fram að Xavier tengist SS-Stál, Paintballhusinu eða Litbolta ehf ekki á nokkurn hátt og hefur engan hag af því að setja þessa tilkynningu upp annan en það að bæta paintball menninguna á Íslandi (vonandi).
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um þessa aðila á ss-stal.is, paintballhusid.is og litbolti.is