Þar sem mikið hefur verið rætt en lítið gert um að auka veg og virðingu opins hugbúnaðar á Íslandi hef ég ákveðið að senda menntamálaráðherra opið bréf sem verður birt hérna á huga. Í anda opins hugbúnaðar hef ég ákveðið að birta drög að því hérna fyrst og biðja um álit ykkar og hugmyndir.


Hæstvirti menntamálaráðherra,

Fyrst ber að taka fram að þetta er opið bréf til þín og mun það ásamt svari þínu við því verða birt á vefsvæðinu www.hugi.is undir Linux áhugamálinu (www.hugi.is/linux).

Í kjölfar nýrra (og að margra mati vafasamra) notkunarskilmála Microsoft á vörum þess og nýlegrar niðurstöðu samkeppnisráðs um möguleg ólögmæti þeirra á Íslandi (http://www.samkeppni.is/akvardanir_alit_umsagnir/akvardanir/2002/akv2502.pdf) hefur skapast umræða um hvort það sé möguleiki á því að breyta um áherslur í hugbúnaðarkaupum íslenska menntakerfisins og skipta yfir í svokallaðan frjálsan eða opinn hugbúnað eins og Linux í skólum landsins.

Ég ætla ekki að fara í langar útskýringar á fyrirkomulagi við framleiðslu á þessum hugbúnaði en frekar að minnast á kostnaðarhagræðingu vegna hans.

Í fyrsta lagi ber að nefna að leyfisveitingar Microsoft eru eingöngu miðaðar við það að Microsoft gefur viðkomandi leyfishafa notkunarleyfi á hugbúnaði sínum en ekki eignarétt og eru ströng skilyrði við notkun hans. Einnig ber að geta að í bandaríkjunum hefur Microsoft ákveðið að miða gjaldtöku sína við allar þær tölvur innan skóla sem mögulega gætu keyrt hugbúnað þeirra. Óþarfi er að taka fram að það geta verið nokkuð margar tölvur innan hverrar stofnunar.

Ef notaður yrði opinn hugbúnaður þá yrði sá kostnaður mjög lítill á hverja vél og margföldunaráhrif út í þjóðfélagið yrðu mikil ef nemendur myndu halda áfram að nota opin hugbúnað eftir að skólagöngu lýkur því sá hugbúnaður sem notaður er í dag getur hlaupið á tugum þúsunda á hverja vél.

Að sjálfsögðu yrði einhver kostnaður við endurmenntun kennara og þjálfun nemenda á þessum hugbúnaði en í raun er notkun þeirra ekki ólík Microsoft hugbúnaði og samhæfni við Microsoft hugbúnað er nánast algjör.

Einnig verður að benda á að hægt er að fá opinn hugbúnað að fullu þýddan á íslensku sem gert hefur verið í sjálfboðavinnu áhugasamra einstaklinga án opinberra styrkja eins og forveri þinn gerði forðum daga með vægast sagt misheppnuðum afleiðingum. Í dag er ekki hægt að gefa þann hugbúnað því enginn vill hann.

Einnig er opinn hugbúnaður mun öruggari en sambærilegur hugbúnaður frá Microsoft og ef gallar finnast þá eru þeir lagfærðir nær undantekningalaust innan nokkura daga í stað margra vikna eða aldrei eins og margoft hefur gerst með vörur frá Microsoft.

Því spyr ég: Hver er stefna íslenskra stjórnvalda í þessum málum og hefur verið litið á opinn hugbúnað sem valmöguleika í íslensku menntakerfi?

Með bestu kveðju,

Jóhannes Reykdal
JReykdal