Gleymt lykilorð
Nýskráning
Lífsstíll

Ofurhugar

Abigel Abigel 1.910 stig
johnnyd johnnyd 1.780 stig
skuggi85 skuggi85 1.434 stig
misstattooine misstattooine 1.198 stig
LadyJ LadyJ 1.188 stig
ruslakallin ruslakallin 870 stig
divaa divaa 814 stig

Stjórnendur

Mitt tattoo (27 álit)

Mitt tattoo Kannski smá pósumynd :P en þetta er ég rétt eftir æfingu. Fékk þetta í febrúar hjá Jóhönnu, hún hannaði þetta sjálf og ég er mjög ánægður!

Er reyndar með annað á vinstri hönd núna, en ætla að fá mér ennþá stærra þar bráðum!

Attitúd (156 álit)

Attitúd Svona lýt ég venjulega út þegar ég yfirgef húsið.

Mótorhjólaleðurjakki keyptur í Kós,
Prada trefill sem ég fékk í jólagjöf. Áður fyrr var það svartur og grár trefill sem ég prjónaði sjálfur.
Hettupeysa (Mastodon)

Svo er ég yfirleitt í þröngum, svörtum gallabuxum og með gaddabelti hangandi um mjaðmirnar. (Ef einhver getur reddað mér bullet belt væri það osom)


Annars legg ég það ekki í vana minn að gefa hverjum sem er fingurinn en þegar fólk sér mig þá er það þetta sem það býst við.

Trey Brewer (24 álit)

Trey Brewer Trey Brewer, sæmilegir quaddar.

Upphafsmenn nútíma spiritjúalisma (21 álit)

Upphafsmenn nútíma spiritjúalisma Á myndinni sjást Fox systurnar Margaret, Kate og Leah frá vinstri til hægri en þær tvær fyrrnefndu eru að jafnaði taldar upphafsmenn nútíma spiritjúalisma, svo sem miðlum, húgögn á hreyfingu og fleira í þeim dúr.

Árið 1848, Kate þá 10 ára og Margaret 12 ára, flutti Fox fjölskyldan til Hydesville í New York fylki í hús sem átti víst að vera drauggangur í.

Fjölskyldan tekur fljótt eftir smellum í húsinu og hljóðum af húsgögnum á hreyfingu. Að kvöldi til 31 mars tekur Kate upp á því að spyrja drauginn hvort hann geti endurtekið smelli sem hún býr til með fingrunum.
Til mikillar furðu þá heyrast jafn margir smellir í húsinu eftir að hún hefur lokið við að smella fingrunum.
Þau ná ólm í nágrannana og með tímanum þróast þetta út í flóknari samskipti þar sem draugurinn smellir þegar systurnar spyrja hann hvað þær séu gamlar og út í kerfi þar sem einn smellur þýðir já og tveir þýða nei.
Einnig tekst þeim að skapa aðferð þannig draugurinn smellir ákveðið oft fyrir ákveðna stafi í stafrófinu.
Hann segist heita Charles B. Rosma og hafa verið farandmaður sem hafi verið drepinn og grafinn í húsinu.

Þegar grafið er í kjallaranum finnast beinaleifar en það er ekki fyrr en 1904 sem heil beinagrind finnst í kjallara hússins.

Í öllum æsingnum eru systurnar sendar til ættingja sinna í nálægum bæ, hvor á sinn staðinn.
Ef grunur efasemdamanna um svindl hafði ekki kviknað fyrr þá var góð ástæða til þess nú, því svo virtist sem draugagangurinn elti systurnar en Charles B. Rosma létt ekkert á sér kræla meðan þær voru ekki í húsinu.

Þær verða báðar miðlar og í kjölfarið kemur alda af fólki sem telur sig geta talað við látna og markast þar upphaf nútíma dulspeki.
Eftir 40 ár, árið 1888, í von um smá auka aur þá ákveða þær að opinbera aðferðir sínar fyrir blaðamanni í staðinn fyrir $1500.

Kate er viðstödd þegar Margaret kemur fram á sviði tónlistarakademíu New York borgar, 21. október, og frammi fyrir áhorfendum og lærðum læknum, lætur braka í tánum á sér svo smellirnir heyrast út um allt. Tilgátan um tásmelli systranna hafði orðið til af efasemdamönnum 1851 en fékk fyrst staðfestingu þarna.

Jafnvel eftir það að upphafsmenn miðlastéttarinnar hafi viðurkennt að þær hafi verið svindlarar þá þráast margir enn við og jafnvel Magnús Skarphéðinsson, formaður sálarrannsóknafélagsins og bróðir Össurar Skarphéðinssonar, telur þær enn þann dag í dag góða miðla.

Psychotic (20 álit)

Psychotic Nokkuð vel gert ef þetta er ekta. Er eiginlega of flott…

Anorexia (24 álit)

Anorexia Anorexíu sjúklingu

Racoon! (186 álit)

Racoon! já, fyrir utan það að ég var komin með feitt ógeð af þessu blessaða auga -_-
þá var ég að lita hárið mitt röndótt!
eða bara einn lokk reyndar, það koma fleiri lokkar, þetta er bara byrjun.

ég mála mig yfirlett ekki svona mikið o.O var í smá myndatöku þarna xD

jæja, kúkið nú yfir þetta^^

Absinthe (42 álit)

Absinthe Var bara að leika mér á netinu og fann þessa mynd, Eru til svona margar tegundir ?, ég helt að það væru kanski til 2 ein stek og önnur, þaufari.
En hvað seigði er erfið að redda sér svona á ísland ?

Hvort? (20 álit)

Hvort? ég bjú þetta til og e´g er að spá í hvort e´g eigi að tattoo-a á mig:S…álit?

Baby Spears... =S (14 álit)

Baby Spears... =S Þær systurnar virðast ætla að hrúga niður börnunum en hún Jamie Lynn Spears litla systir Britney Spears er víst ólétt og er komin 12 vikur á leið…. en faðirinn er eitthver 18 eða 19 ára gamall gaur sem Jamie kynntist í kirkju…En hún sjálf ef 16 ára (fædd 1991).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok