Já, það er alltaf jafn skemmtilegt að heyra af því hvað erlendir gestir eru alltaf jafn sáttir við dvölina hérna á Íslandi.
Hinsvegar eru oftast ástæðan fyrir því hvað þeir skemmtu sér vel ekki nógu ánægjuleg. Það virðist sem flestir karlmenn sem koma hérna eru í sjöunda himni yfir ástandi kvenna á djamminu og svona(veit þetta gæti líka alveg eins átt við hitt kynið líka). Þeir virðast allir vera sammála því að íslenskir kvenmenn drekka óhemju mikið og eru frekar frjálslyndar í samskiptum.

Skemmtileg ummæli t.d. sem Tarantino sagði í Conan o´Brien en það hljómaði einhvernveginn svona íslenskað

Í USA hugsa menn um að hella stelpurnar fulllar en á Íslandi hugsa menn um að koma stelpunum heim áður en þær verða of fullar þannig þær deyji eða æli yfir allt heima hjá manni

Jamm alltaf jafn gaman að heyra svona.

Svo er Íslandi víðsvegar auglýst í einskonar helgarpakka sem exotic island, where all your dreams can come true

ég veit að við íslendingar erum mjög frjálslyndir og er það gott en við erum svo sannarlega einsog krakki með eldspýtur þegar farið er út í drykkju og skemmtun. Hegðum okkur einsog villimenn. Þetta á við meginþorra landsins því miður.

Attitudið í útlöndum er allt annað, ekki algilt samt.

Þar sem maður er Íslendingur og þykir alveg vænt um álit gesta á landinu og fólkinu sem býr þar þá finnst mér þetta svo ömurlegt.
Íslendingar virðast ekki kunna að skemmta sér án þess að hella sig blindfulla þar til þeir hafa ekkert vit í hausnum.

Veit alveg að margir “töffarar” eiga eftir að svari þessu á hátt einsog hvað ertu að væla. færðu ekki nóg að ríða? aumingi en mér hlæ bara að því það undirstrikar meiningu mína.

vona að á nýrri öld að íslensk menning fari nú að rífa sig upp og við opnum augun fyrir þeim ótal möguleikum sem Ísland hefur uppá að bjóða. Hver bannar það að fara léttur á tónleika til að njóta þeirra;)…ekkert leiðinlegra en að hella sig það fullan að geta ekki notið hlutana.
Það er heldur ekkert einungis listmenningin sem er sterk á Íslandi því hæfileikafólk má finna á öllum sviðum á Íslandi enda erum við dugleg og kröftug þjóð með heilan helling af hæfileikum;)

uss.. búinn að skrifa nóg. er bara að skrifa þetta því ég er svo hundsvekktur yfir því að Kaninn sé að hlæja að okkur í Conan yfir því að við séum bara fyllibyttur og kjánar og kvenmennirnir okkar séu druslur.

hehe.sýnum bara íslenska andann;)