Skrifaði þennan þráð upphaflega á PSX.is en mér fannst áhugavert að skella þessu hér fyrir frekara debat…

Einhver sem hefur gluggað í helgarblað DV núna um helgina? Ef þið getið, endilega kíkið. Gagnrýni þeirra á SingStar á PS3 er einhver ófagmannlegasta grein sem ég hef lesið í nokkrum bleðli. Nokkurn tímann.

Fyrir það fyrsta, þá gefur greinarhöfundur í skyn að leikurinn sé kominn út. Það er ekki rétt, hann er ekki einu sinni kominn með útgáfudag. SingStore er ekki enn opin svo það er ekki hægt að dæma hana, hann hefur vafalaust ekki rýnt í EyeToy/PSEye connectivityið þar sem ekkert er minnst á það. Reyndar er meira púðri eytt í það að fullyrða hvað hann hefur óbeit af singstar partýum en að tala um leikinn sjálfan.

Versta. Grein. Ever.