Fékk mér Wii Play á laugardaginn og er ekki sáttur, því miður. :/
9 leikir, flestir frekar slappir að mínu mati nema kanski 9-ball poolleikurinn og skriðdrekaleikurinn… Það fylgir auka fjarstýring fyrir þá sem að eiga ekki fjórar nú þegar samt.
Ég var heldur ekki að finna hann þótt nóg væri til af þeim í BO… Í BO er hann hengdur upp þar sem fjarstýringarnar eru… Það fylgir fjarstýring með leiknum (ekki hægt að kaupa hann án hennar) og pakkinn utan um leikinn lítur út eins og umbúðir fyrir fjarstýringu. :/
Ég er samt aðeins að snúast yfir í það að kanski sé pool leikurinn + fjarstýringin peninganna virði… En ég er enn lítið hrifinn af hinum leikjunum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..