Fann ekki betri stað fyrir þetta þar sem þetta er víst ekki nógu langt til að vera grein.

Leikjatölvu Trivia 1 var 12. - 26. jan. Í henni voru alls 10 spurningar. 3 af þeim tengdust Sony (PlayStation) og restin var allt NINTENDO sem mér finnst mjög asnalegt þar sem þetta er /leikjatölvur ekki /nintendo. Og það var ein eða engin spurning sem tengdist Microsoft (Xbox).

Ég fór í BT í gær og prufaði Ps3. Ég var orðinn svo spenntur yfir Wii að ég hafði gleymt því sem ég ætlaði að kaupa í byrjun. Ég opna /leikjatölvur á hverjum degi og sé varla neitt um Playstation 3 og mesta sem ég sé um Xbox 360 er Stigahæstu leikmenn Xbox live á Íslandi og síðan nokkra korka fyrir neðan.

Svo ég bara spyr er /leikjatölvur orðið að /nintendo ?

Engin skítköst takk
Takk fyrir,
Orri