Já eftir 8 frábær gagnrýni… Flest að gefa leiknum frá 9.6 til 10… Þá kemur 8.8 frá Gamespot's eigin Jeff Gertsman.

Ég ætla ekki að blóta honum og bölva eða öfugt… Hef ekki ennþá spilað leikinn allan í gegn og hef því litla hugmynd um hversu góður hann er… En þetta kemur mér verulega á óvart. 8.8? Og gagrýnin óttalega stutt.

Við erum að tala um Jeff Gertsman, manninn sem gaf Tony Hawk heila 10 í einkun og lét þar fylgja 4 blaðsíðna gagnrýni.

Mér fannst þessi gagnrýni hanns heldur ekki alveg réttlæta 8.8 í einkun. Og velti því jafnan fyrir mér hvort hann sé rétti maðurinn í hlutverkið. Hefði viljað sjá Greg Kasavin t.d. gagnrýna leikinn.

Frekar fúlt :( En já, kannski á leikurinn réttilega skilið 8.8. - Ég mun vita það þegar ég spila sjálfur leikinn :)