Mjög skemmtilegur og opinn leikur, og minnir ákveðið á Harvest Moon leikina. Eini mínusinn er að miðað við GC leikinn, þá eru engir NES leikir til að spila á, en mér skilst að það sé meira af öðru innihaldi í DS útgáfunni. Góður leikur til að grípa í í svona 30-60 min á hverjum degi, sem að gefur honum ekki mikinn spilunartíma per dag, en mikið langlífi hins vegar.