Útgefandi: Tartan.
Region: 0

Of sjaldan rekst ég á virikilega góða DVD mynd. Þ.e. sem er stúttfull af virkilega góðu aukaefni, Battle Royal Special Edition er með bestu titlum sem ég hef nokkrumtíman séð á DVD.
Myndin sjálf er þónokkuð skýr(annað en Ring DVD) og hljóðið er magnað, virkilega gaman að botna þessa mynd í græunum.

Fyrri diskurinn:

Myndin sjálf, 8 mínútum lengri og önnur tegund af endi sem maður getur séð.

Seinni diskurinn:

Gerð myndarinnar, æfingar, blaðamannafundur, tæknibrellu feature, heimildarþáttur um myndina og leikstjórann… plús fullt af öðru.

Þessi útgáfa var víst bara gefin út í takmörkuðu magni og verður þetta líklegast eins sjaldgæft og Evil Dead 2 Tin eftir ár eða tvö.
Fyrir utan það sem er á diskunum fylgir með rammi úr filmu sem sýnd var í bíó… klipt með höndunum og komið fyrir í ramma. Hvert og eitt er sér númerað þannig að ykkar eintak verður einstakt.
Battle Royal fékk virkilega DVD útgáfu sem hún átti skilið…

Myndin - **1/2
Aukaefni - ****
Söfnunargildi - ****


Til sölu hjá,
www.amazon.co.uk
www.play.com