Eins og flestir vita þá er verið að framleiða The Exorcist 4 sem er sagan um það hvað presturinn Merrin var að gera áður en hann kom fram í The Exorcist. Eins og kom fram í The Exorcist þá var Merrin reyndur á sviði særinga.
Nú er komið í ljós hver mun leika Merrin í nýju myndinni. Því miður snýr Max von Sydow ekki aftur en í stað hans kemur annar sænskur leikari, Stellan Skarsgård. Stellan er þekktur heima í Svíþjóð fyrir leik sinn og þar sem ég hef nú eitt hluta af ævi minni þar þá tel ég hann vera ekki síðri en Max til að gera þetta.
Það fyndna við þetta allt saman er að Max von Sydow var fertugur þegar hann lék Merrin… Stellan er í dag 51. árs og á leika Merrin þegar hann var yngri.

Búist er við því að The Exorcist 4: 1 komi í kvikmyndahús á næsta ári.