Mel Gibson sem Jesús Kristur? Stórleikarinn Mel Gibson hefur verið orðaður við að ætla að taka að sér hlutverk Jesús Krists.

Leikarinn er Rómversk-kaþólskur og er sagður hafa talað við guðfræðinga og leitað að staðsetningum fyrir myndina.

Kaþólska dagblaðið Avvenire segir frá að myndin muni heita Passion og verði tekin upp í Suður-Ítalíu.

En áður en Gibson getur tekið þetta að sér verður hann fyrst að leika í sjónvarpsseríunni The Singing Detective, hann er nefnilega bundinn til að leika í henni.