Dumb and Dumber prequel New Line Cimena tilkynnti að prequel (mynd sem gerist áður en fyrri myndin á að gerast) af Dumb and Dumber sé í framkvæmdum.

Fyrsta myndin skartaði þeim Jim Carry og Jeff Daniels en því miður munu þeir ekki snúa aftur.

Myndin mun fókusa á yngri ár þeirra léttrugluðu félaga Harry Dunne og Lloyds Christmas.

Plottið er sagt fjalla um þegar þeir eru að reyna að komast úr sérskóla yfir í venjulegan menntaskóla.

Sjónvarpsleikstjórinn Troy Miller hefur verið ráðinn til að sjá um myndina. Líklegt er að myndin skelli í kvikmyndahús næsta sumar.