Men In Black 3 Framhöld eru ekki óalgeng í Hollywood. Framhaldið af hinni vinsælu mynd, Men In Black, Men In Black II er nýkomin út í kvikmyndahús vestanhafs og er að gera það gott, slær alls konar met en þó eru flestir gagnrýnendur sammála um að hún slái ekki fyrri myndina út í gæðum en sé samt fyrsta flokks skemmtun.

Eins og hægt var að sjá hafa formenn Columbia Pictures ákveðið að gera Men in Black 3 en ætla ekki að bíða aftur í fimm ár eftir framhaldi. Þeir eru strax byrjaðir að hugsa um hvað hún getur verið.

Men In Black II verður frumsýnd 19. júlí hérna á Íslandi.