The Matrix Reloaded á DVD Góðar fréttir fyrir Matrix aðdáendur og þá sem munu fíla framhöldin.

DVD diskurinn fyrir The Matrix Reloaded mun koma út aðeins 3 mánuði eftir frumsýningu. En það er ekki allt, pakkinn inniheldur 3 diska og meðal annars er fyrsta myndin, The Matrix. Svo verður auðvitað góður skammtur af aukaefni.

The Matrix Revolutions mun svo koma út með sama hætti stuttum tíma eftir frumsýningu og einnig í þriggja pakka útgáfu.

The Matrix Reloaded kemur í bíó 23. maí hérna á Íslandi og The Matrix Revolutions í nóvember líklega.