Will Smith í Matrix Rapparinn og leikarinn Will Smith var að segja frá í viðtali þegar hann hafnaði hlutverki Keanu Reeves í The Matrix sem Neo.

“I was like, ‘Yeah right, ’The Matrix.' Computers have taken over the world. I think I'd better go off and do that good film 'Wild Wild West.” segir Smith um leið og hann hristir hausinn.

Frekar vildi hann gera góða mynd eins og Wild Wild West frekar en að gera einhverja framtíðarmynd þar sem vélmenni hafa tekið yfir. Það hefði hann heldur betur ekki átt að gera því Wild Wild West var alveg hræðileg mynd og algert flopp á meðan The Matrix sló í gegn um allan heim og aflaði sér frábæra gagnrýni meðal áhorfenda og gagnrýnenda.

En svo á meðan er konan hans Smith að leika í myndunum, hún Jada Pinkett Smith.