Cage, Yun-Fat og Woo sameinast! Hasarmyndaleikstjórinn John Woo vill núna fá Chow Yun-Fat og Nicolas Cage í nýja mynd sem hann ætlar að leikstýra.

Land of Destiny myndi myndin heita.

Hún mun fjalla um útlenska verkamenn sem vinna að járnbraut á 19. öldinni. Woo mun beina myndinni að kínverskum og írskum verkamönnum í Bandaríkjunum.

“Among them are cultural clashes and racial problems, but eventually they become good friends and build their dreams co-star in it.” sagði Woo.

Sagði hann að þarna myndi koma til menningaráreksturs og kynþáttahaturs en á endanum myndu þeir verða góðir vinir.

Svo virðist hann Woo vera farinn að gera annað en hasarmyndir því næsta mynd hans verður rómantísk gamanmynd um tvo þjófa sem verða ástfangnir af sömu konunni. Þar á eftir gæti komið einn vestri og svo önnur hasarmynd sem byggist á söng og dansi.

Windtalkers er væntanleg mynd í kvikmyndahús eftir John Woo og er meðal annars með honum Nicolas Cage í aðalhlutverki.