William H. Macy í nýrri mynd um mannrán son Frank Sinatra Hinn skemmtilegi leikari William H. Macy er núna á leiðinni í nýrri mynd um mannrán son stórsöngvarans og leikarans Frank Sinatra. Eiginmaður Courtney Cox Arquette, David Arquette mun líka vera í myndinni.

Sá sem mun leika son Frank Sinatra, Frank Sinatra Jr. mun vera hinn 22 ára gamli Thomas Ian Nicholas. Hefur hann leikið í myndum eins og American Pie 2, Road Trip og H20.

Ron Underwood, maðurinn sem færði okkur Tremors og Mighty Joe Young, einnig skrifaði hann handritið af Tremors 2: Aftershock.
Veit nú ekki hvort það er við miklu að búast af þessum gaur.

Þetta er auðvitað byggt á sannsögulegum atburðum þegar syni Sinatra, 19 ára að aldri var rænt fyrir utan hótel í Nevada.

Ræningjarnir tóku hann til Los Angeles og héldu honum þar þangað til Frank Sinatra borgaði þeim £170.000. En svo kjaftaði einn bróði ræningjana í yfirvöldin, öllum þremur ræningjunum var náð og voru þeir sakfelldir.