Bruce Willis talar við látinn bróður sinn Heimsfrægi leikarinn Bruce Willis segist hafa talað við dáinn bróður sinn í gegnum miðil.

Bróðir hans hét Robert Willis og dó 42 ára úr krabbameini.

Willis lýsti þessu svona í The Sun; “Þessi kona getur fengið upplýsingar frá hinum heiminum. Hún byrjaði að tala með rödd bróður míns, blótandi eins og hann gerði.”

“Tárin runnu niður andlit mitt og núna veit ég að það er líf eftir dauðann. Ég veit ekki hvernig það virkar, en ég trúi því samt.”