Arnold Schwarzenegger segir að handritið af True Lies 2 hafi verið samið og sé nánast tilbúið.

Það þýðir einfaldlega að núna er öruggt að Harry og Helen Tasker munu snúa aftur í framhaldi af hinni stórskemmtilegu mynd James Cameron, True Lies.

Jamie Lee Curtis mun einnig koma aftur í framhaldinu.

En Arnold er ekki viss um þeir muni byrja að taka upp á þessu ári.
Hann ætlar að taka T3 vel í gegn, það sé ekki stíllinn hans að gera stórmynd og fara strax aftur og gera aðra.

Honum finnst best að gera eina mynd á ári. Þeir munu allavega byrja að mynda á næsta ári. Handritið er gott, segir Arnie og að mestu leyti búið.

Flott comment frá Arnie í endann:
“Do you honestly think I could while I'm doing Terminator 3 and then True Lies 2? I can't do all of it! I'm only human.”