A.I.: Artificial Intelligence Núna fer þessi umdeilda mynd að koma á DVD eða til að vera nákvæmari, 5. mars 2002.

Eins og flestir vita þá er það séníið Steven Spielberg sem leikstýrir þessari mynd og í aðalhlutverkum eru Haley Joel Osment og Jude Law.

Í framtíðinni lifa mennirnir með vélmennum eða svokölluðu Mechs. En þegar það kemur vönduð frumgerð af vélmenni, David (Haley), sem er forritað til að sýna tilfinningar þá er ekki fjölskylda Davids ekki tilbúin fyrir afleiðingarnar. Skyndilega er David staddur í sínum eigin heimi, dimmum og drungalegum. En vingast við annað vélmenni, Mecha (Law), sem veitir öðrum kynferðislega ánægju :)
Saman fara þeir í undursamlega leið til að finna sjálfan sig.

Diskarnir verða 2 talsins.

* Heillandi heimildarmynd um hvernig sagan var færð yfir á tjaldið.
* Viðtal við Spielberg, Osment og Law.
* Nánari upplýsingar um framleiðslu og gerð vélmenna í AI.
* Kvikmyndatrailer
* Söguborðið
* Framleiðslunótur
* og margt miklu fleira..

Og myndin verður 1.85:1 Widescreen og náttúrlega Dolby 5.1 hljóð.