Braindead Leikstjórar: Peter Jackson
Handrit: Stephen Sinclair
Tegund: Grín/Splatter
Lengd: 104 mín.
Framleiðsluár: 1992
Land: Nýja Sjáland

Leikararnir:
Timothy Balme …. Lionel Cosgrove
Diana Peñalver …. Paquita Maria Sanchez
Elizabeth Moody …. Mum (Vera Cosgrove)
Ian Watkin …. Uncle Les

Í eftirfarandi grein koma fram mikilvæg atriði úr kvikmyndinni.

SBS:

Lionel
Cosgrove: They're not dead exactly, they're just… sort of rotting.


Það hafa
verið gerðar margar lélegar kvikmyndir. Þá sérstaklega hryllingsmyndir. En það
sem Dead Alive hefur að bjóða er akurat það, hún er svo léleg að hún er, ja
meistaraverk. Hún er hryllilega ofleikin, leikstýrð eins og leikstjórinn hafi
ekki getað staðið uppi, handritið hallærislegt og allra lélegasta tónlist sem ég
hef heirt. Ég tel að gæði eru eins og hringur en ekki lína. Ef að kvikmyndin nær
að verða nógu léleg þá er hún orðin góð. Þetta á akurat við um Dead Alive. Maður
getur horft á hana aftur og aftur og hún er alltaf jafn skemtileg. Ég veit að
þetta er það sem Peter Jackson var að gera. Hann er ekki lélegur leikstjóri og
hann hefur sýnt það marg oft.

Kvikmyndin fjallar um Lionel Cosgrove. Hann býr með móður sinni sem er allt
annað en skemtileg manneskja. Hún þrælar honum út við ýmis störf og þegar hann
snýr sér annað þá lætur hún hann fá samviskubit. Þegar hann kynnist Paquitu
verður þau ástfanginn og allt það. Þau fara í dýragarðinn og sjá þar hinn
allræmda rottuapa. Það sem þau vita ekki er að mamman elti þau og er svo bitinn
af apanum. Eftir það fara skrítnir hlutir að gerast. Mamman fer að breytast í
eitthvað. Eitthvað sem bítur aðra og þá fara þau að vera eins og hún. Það er
lítið annað hægt að segja um söguþráðinn. En margt skemtilegt kemur fyrir í
myndinni, ninja prestur, skrímsla barn, rottuapi, sláttuvél og fleira.


Paquita
Maria Sanchez: Your mother ate my dog!
Lionel Cosgrove: Not all of it.

Allavegana
er þetta frábær kvikmynd, hún fékk góða gagnrýni hjá flestum gangrýnendum og
allir hafa gaman af henni. Nema nátturulega þeir sem eru viðkvæmir. En
allavegana vel þess virði að horfa á.

Father
McGruder: I kick arse for the lord!

http://www.sbs.is