Ring 2 (1999) Sagan: Prófessor rannsakar leyndardóminn á bak við Sadako og videospóluna.

Það leið nú ekki langt á milli þess að Ringu kom út og að framhaldið, Ring 2 leit dagsnins ljós… þ.e. sama ár.

Það er eitt atriði sem hafa skal í huga þegar horft er á Ringu myndir, þú munt aldrei sjá hana með sömu augum, þ.e.a.s. eftir fyrsta skiptið er hún ekki næstum því eins mögnuð. Ég mæli því með að ef þið eruð að spá í að kíkja á hana að horfa á hana ein, með slökt ljósin… og kannski fá sér öl eða tvo.

En snúum okkur að Ring 2 sem tekur upp þráðinn strax eftir Ringu. Sama fólkið er að vinna að þessari mynd og sér maður strax að þetta er sami leikstjórinn, svolítið sérstakur.

Ekki halda þó að þið hafið fundið mynd sem er betri en Ringu… langt þar í frá.

Asakawa og Youichi eru horfin, pabbi Asakawa er dáinn af því sem virðist vera gamla vinkona okkar Sadako. Krufning á líka Sadako er hafin og kemur það í ljós, mönnum til mikillar skelfingar, að líkið er ekki nema tveggja ára gamalt… sem þýðir að Sadako eyddi um 28 árum föst ofan í brunninum.
Fyrrverandi samstarfsmaður Asakawa ætlar sér að klára fréttina um videóspóluna sem drepur, fréttin sem Asakawa var að vinna að og leiddi hana til helvítis og til baka í fyrri myndinni. Hann fær með sér í lið nemanda Koichi, fyrrverandi eiginmanns Asakawa(náðuð þið þessu?), sem fann kennara sinn dáinn heima hjá sér… af völdum Sadako.
(Er þetta orðið nógu flókið?)
Asakawa og Youichi komast í leitirnar og komast þau að því að Youichi er kominn með hæfileika sem eru ekkert ósvipaðir því sem Sadako var með. Nú þurfa þau að reyna að nota þessa orku til að losa heiminn við Sadako fyrir fullt og allt.

Söguþráðurinn tekur fullt af óvæntum kippum… sem er venjulega ekki slæmt nema hvað að maður er orðinn svo ringlaður af þessu öllu að maður vill bara að myndin fari að enda.
Það er fullt af holum í handritinu, þ.e. hlutir sem eru ekki fullkomlega útskýrðir og maður situr gapandi, vitandi hvorki upp né niður.

Aftur á móti þá á myndin sínar stundir og hræddi mig oftar en einusinni, og þó að þessi sé meira budget mynd heldur en Ringu þá helst enn í drungarlega umhverfið.
Myndatakan og tæknibrellurnar eru góðar nema þá að hönnunin á Sadako brást mér á köflum.

Góð mynd fyrir þá sem eru hrifnir af Ringu. En ekki sjá hana án þess að þið séuð búin að sjá forverann…

***

Atli Freyr – 01/10/2002