Britney Spears í Die Hard 4? Ekki skánar það varðandi Die Hard 4, núna hafa fréttir borist að poppsöngkonan Britney Spears muni hugsanlega fá hlutverk í Die Hard 4 sem dóttir John McClane, Lucy.

Myndin á víst að gerast í Karabíahafinu og mun John þá hitta dóttur sína þar sem hann hefur ekki talað við í 10 ár.

Fyrir aðdáendur skotbardaga verður lítið varið í þessa mynd fyrir þá því samkvæmt heimildum mun John skjóta aðeins tveimur skotum í myndinni og annað þeirra verður til að bjarga dóttur hans. Byssan er þýsk Luger skammbyssa sem finnst neðansjávar í flugvél úr seinni heimsstyrjöldinni. En það verður mikið um slagsmál og þ.ám. ein slagsmál með Lucy.

Viðræður eru í gangi um að hafa Demi Moore sem óvininn þótt óvini af japönskum uppruna sé óskað.

Myndin byggist á því að John bjargi dóttur sinni þegar henni er rænt af gengi.