T3 trailer! Núna loksins er mætt almennilegt sýnishorn úr einni af stærstu myndum komandi árs, Terminator 3: Rise of the Machines.

Lítið er hægt að segja um hann annað en hann slær allavega hinn teaserinn sem við fengum og við eigum von á mjög miklum hasar. TX leit einnig nokkuð vel út.

Ég las um daginn að Brad Fiedel ætlaði ekki að sjá um tónlistina en hann samdi hana fyrir hinar tvær og sagt er að nýji maðurinn ætli eitthvað að fara gera nýtt stef fyrir myndina sem er gersamlega stranglega bannað því stefið er eitt aðalsmerki myndarinnar.

Þú getur skoðað trailerana <a href="http://www.apple.com/trailers/wb/t3">hérna</a>.