DVD Hér má sjá posterið fyrir næstu mynd Ridley´s Scott. Myndin heitir Blawk Hawk Down og er byggð á sannri sögu. Árið 1993 sendu Bandaríkjamenn sína bestu sérsveitarmenn(Rangers og Delta Force) til miðborgar Mogadishu í Sómalíu í Afríku. Verkefni þeirra var að handsama stríðsherra nokkra. Verkefnið sem átti aðeins að taka stuttan tíma varð hinsvegar að hreinasta helvíti þegar tvær Black Hawk Down þyrlur voru skotnar niður. Nánast allir í borginni réðust að Bandarísku hermönnunum(mikið hatur var gegn USA vegna stefnu þeirra í Sómalíu). Sérsveitirnar þurftu nú að berjast fyrir lífi sínu í um sólarhring áður en hjálp barst. 18 Bandarískir hermenn létust og um 70 særðust. Hinsvegar er talið að rúmlega þúsund Sómalir hafi látið lífið. Þetta var virkilega ógeðsleg orrusta því hermennirnir þurftu að skjóta börn til að lifa af. Mæli með að fólk lesi bókina fyrst en hún er eftir Mark Bowden. Myndin verður frumsýnd í mars á næsta ári í Bandaríkjunum.