Ég las í fréttum um daginn um gæja í Kaliforníu sem var verið að ákæra fyrir að misnota róna í gerð myndar. Auðvitað hljómaði þetta skemmtilega þannig að ég náði mér í eintak af Bumfights: A cause for concern….

Hér er á ferð einhver ótrúlegasta mynd sem ég hef á ævinni séð. Real life rónar að berja hvorn annann og gera ýmisleg “stunt” fyrir smá pening. Svo sem að hlaupa með hausinn fyrst í gegnum rúður og láta draga úr sér tennur með töng. Crack dópistar sýna smá innsýn í sinn heim auk fjölda alvöru slagsmála atriða milli róna, stráka og stelpna. Fyrst fannst mér þetta frekar ógeðslegt en eftir smá stund fór þetta að verða skemmtilegt að horfa á. Svona er maður sick.

Ef ykkur fannst Jackass skemmtilegir en ekki nógu grófir þá er Bumfights málið. Ég fékk mína á Kazaa. Enjoy…