Ég var að koma núna heim úr luxussal í sambíóunum að álfabakka að sjá kvikmyndina Signs en ég vill ekkert segja frá henni að svo stöddu ( ég vill ekki vera neinn spoiler) annað en það að hún er geðveikt góð og hvet fólk til þess að fara að sjá hana.

En allavegana átti ég ekki von á að þessi salur væri svona rosalega góður og þægilegur að vera í. Ég sat þarna í hægindastól sem var rafknúinn og mjög þægilegur að sitja í og frammi er ísskápur , fullur af kóki og fanta og poppvél hliðiná ísskápnum og maður gat fengið sér eins mikið og maður vildi.

Áður hafði ég farið í luxussalinn í smárabíó sem var mjög frábrugðinn þessum og miklu lélegri. Þar var bara um 2 stellingar að ræða og svo fékk maður bara innistæðu í sjoppuni eða 300 krónur.

En ég hvet fólk til þess að prófa þennan sal í sambíóunum ef það hefur ekki gert það og ég lofa að þið munuð ekki sjá eftir peningunum.